Úrslit Pangea stærðfræðikeppninnar á Íslandi fóru fram þann 17. mars sl. Við í Hörðuvallaskóla áttum 8 keppendur í úrslitakeppninni sem var glæsilegur árangur hjá okkur fólki, en í úrslit komust 89 nemendur af landinu öllu. Að lokum fóru leikar þannig að einn af okkar nemendum náði verðlaunasæti en það var Ari Þröstur Arnarsson í 8. bekk sem hafnaði í öðru sæti í flokki 8. bekkjar nemenda. Innilega til hamingju með árangurinn!
Úrslit urðu annars sem hér segir:
8. bekkur
1. sæti - Ingi Hrannar Pálmason Brekkuskóla
2. sæti - Ari Þröstur Arnarsson Hörðuvallaskóla
3. sæti - Benedikt Magnússon Hagaskóla
9. bekkur
1. sæti - Þorkell Auðunsson Hagaskóla
2. sæti - Einar Andri Víðisson Vættaskóla
3. sæti - Sæmundur Árnason Foldaskóla
Hér má sjá Ara Þröst ásamt Hrafnhildi stærðfræðikennara.
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. Starfsfólk og netföng |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is