Skólamót Kópavogs í skák

Stúlknasveit Hörðuvallaskóla: Laufey, Þórunn og Elísa.
Stúlknasveit Hörðuvallaskóla: Laufey, Þórunn og Elísa.

Stúlknasveit Hörðuvallaskóla í skák hafnaði í öðru sæti á skólamóti Kópavogs fyrir 5.-7. bekk sem var haldið á þriðjudag í stúkunni í Breiðablik. Stúlkurnar sem skipa skólalið Hörðuvallaskóla heita Laufey, Þórunn og Elísa og eru allar í 6. árgangi. Við erum afar stolt af stelpunum okkar og óskum þeim innilega til hamingju með silfrið.