Menntamálastofnun hefur gefið út veggspjald sem tíundar einkenni góðs lesara. Efni veggspjaldsins tengist framtíðaráherslum í útgefnu efni á vegum Menntamálastofnunar og læsisverkefnisins sem sett var á laggirnar í kjölfar Þjóðarsáttmála um læsi.
Lesskilningstækni og lesskilningsaðferðir eru nauðsynleg viðfangsefni og mikilvægur þáttur í formlegri læsiskennslu svo læsi nemenda vaxi og dafni í takti við þroska, áhuga og kröfur sem nám gerir til þeirra. Á veggspjaldinu er lögð áhersla á að útskýra þá hæfni sem einkennir góðan lesara og sjálfsagt er að gera þessa hæfni að umræðuefni með nemendum svo þeir geti betur glöggvað sig á færninni sem gerir þá að góðum lesurum. Veggspjaldið má nálgast hér..
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. Starfsfólk og netföng |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is