Íslandsmeistarar í sjötta sinn!
A-sveit Hörðuvallaskóla vann yfirburðasigur á Íslandsmóti grunnskólasveita í skák, sjötta skiptið í röð sem er Íslandsmet!
Sveitin hlaut 26 vinninga af 28 mögulegum eða tæp 93%. A-sveit Rimaskóla hafnaði í öðru sæti með 18 ½ vinning og A-sveit Laugalækjarskóla varð þriðja með 17 vinninga.
Sveit HV var þannig skipuð að venju: Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Arnar Milutin Heiðarsson, Sverrir Hákonarson og Óskar Hákonarson.
Liðsstjórar voru Gunnar Finnsson og Óskar Hákonarson.
Vignir, Stefán og Arnar fengu viðurkenningu fyrir besta árangur á fyrsta, öðru og þriðja borði en þeir unnu allar sínar skákir. Sverrir vann einnig allar skákir sínar en tefldi færri.
B-sveit HV, sigurvegarar í Íslandsmóti barnaskólasveita, tók þátt í grunnskólamótinu og lenti í 8.-9. sæti með 14 vinninga.
Sveitin var þannig skipuð: Benedikt Briem, Grétar Jóhann Jóhannsson, Guðrún Fanney Briem, Guðmundur Reynir Róbertsson, Hilmar Óli Viggósson og Alexander Rúnar Róbertsson.
Liðsstjóri var Kjartan Briem.
B-sveitin hlaut viðurkenningu fyrir besta frammistöðu B-liða í mótinu.
Lið Hörðuvallaskóla sem sigruðu á Íslandsmóti barnaskóla – og grunnskólasveita unnu sér þar með rétt til að tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í skólaskák sem fram fer í Svíþjóð í september.
Þetta er líklega í fyrsta sinn sem tvær sveitir frá sama skóla hérlendis, tefla á Norðurlandaskákmóti.
Til hamingju krakkar fyrir glæsilegan árangur!
Skákkennari
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. Starfsfólk og netföng |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is