24.10.2018
Nemendur í valgrein á unglingastigi hafa nú sett í loftið vef sem hefur að geyma ýmsar fréttir úr skólastarfinu. Smellið á fyrirsögnina til að nálgast slóð að vefnum..
Lesa meira
08.10.2018
Undanfarnar vikur hafa nemendur í unglingadeild skólans verið að vinna í samvinnuverkefnum í tengslum við samfélagsfræði. Þeir fengu að velja á milli sex verkefni en það voru fátækt, réttindi minnihlutahópa, hlýnun jarðar, heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, tækniþróun (áhrif á manninn) og jafnrétti og lýðræði. Nemendur höfðu að mestu frjálsar hendur hvað varðar útfærslu á verkefnum og sem skilaði sér í mikilli fjölbreytni þegar kom að kynningum. Í skilaverkefnum var rappað, búin til dagblöð, sýnd viðtöl (m.a. við bæjarstjóra Kópavogs), búin til myndbönd, listaverk, spil og margt fleira.
Einn af hópnum sem gerði spil um jafnréttismál ætlar að sækja um styrk til að gefa spilið út, við fengum vandað myndefni sem við getum nýtt í kennslu um gróðurhúsaáhrifin og svo voru nokkrir nemendur í 8. bekk sem sýndu okkur áhrifaríkt myndband um fátækt sem má sjá hér: https://youtu.be/Pztw0jOi04g
Lesa meira
07.10.2018
Fullrúar nemenda í 8. og 9. bekk Hörðuvallaskóla áttu fund með forsvarsmönnum Menntamálastofnunar í morgun til að kynna þeim vinnu sína við greiningu á hæfniviðmiðum í samfélagsfræði.
Lesa meira
02.10.2018
Borist hefur tilkynning frá menntamálaráðuneytinu um breytingu á dagsetningum samræmdra könnunarprófa í 9. bekk, sem haldin verða í mars 2019. Ráðuneytið hefur ákveðið að færa dagsetningar könnunarprófanna fram um einn dag. Ástæða breytinganna er sú að Íslandsmót iðn- og verkgreina skarast á við fyrirhugað könnunarpróf í ensku þann 14. mars. Í tilkynningunni er nefnt að bæði Íslandsmótið og samræmdu könnunarprófin séu afar mikilvæg fyrir skólasamfélagið og þau geti ekki farið fram sama dag. Þar segir að keppst sé við að fjölga nemendum í iðn- og verkgreinum og því mikilvægt að flestir nemendur efstu bekkja grunnskóla fái að kynnast iðn- og verkgreinum og námstækifærum á þeim sviðum. Sýningin og Íslandsmótið hafi vaxið og dafnað undanfarin ár og sé frábær leið fyrir nemendur til að kynna sér fjölbreytni iðn- og verknáms á skemmtilegan og lifandi hátt.
Dagsetningar prófanna verða því eftirfarandi:
11. mars, mánudagur – íslenska
12. mars, þriðjudagur – stærðfræði
13. mars, miðvikudagur – enska
Lesa meira
30.09.2018
Nú höfum við birt fréttabréf / matseðil októbermánaðar. Í plagginu er auk fastra liða að finna upplýsingar úr starfsáætlun skólaársins um helstu verkefni okkar í vetur, minnispunkta til foreldra varðandi einelti, foreldraröltsdagskrá og Kúludagskrá mánaðarins o.fl. Smellið á fyrirsögnina til að nálgast ritið..
Lesa meira
29.09.2018
Nú er starfsáætlun Hörðuvallaskóla fyrir skólaárið 2018-2019 komin á heimasíðuna. Starfsáætlun er gerð árlega og er hún hluti af skólanámskrá skólans. Í árlegri starfsáætlun er m.a. gerð grein fyrir stjórnskipulagi skólans, skóladagatali, þ.m.t. lengd jólaleyfis, páskaleyfis og annarra vetrarleyfa, starfsáætlun nemenda, skólareglum, fyrirkomulagi kennslu, stoðþjónustu, félagslífi og öðru því sem varðar starfsemi skólans ár hvert. Þar eru einnig birtar upplýsingar um starfslið skólans, stjórnkerfi, mögulegan stuðning fyrir nemendur og almennar, hagnýtar upplýsingar um skólahald hvers skólaárs. Starfsáætlun er árlega lögð fyrir skólanefnd til staðfestingar sem staðfestir gildistöku þegar ljóst er að hún hafi verið unnin í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá, kjarasamninga og ákvarðanir sveitarstjórnar um fyrirkomulag skólahalds.
Starfsáætlun er birt á heimasíðu skólans og þar er einnig að finna aðra hluta skólanámskrár, þ.e. starfsmannahandbók og skipulag námssviða.
Lesa meira
29.09.2018
Októberdagskrá Kúlunnar er komin á netið.. smellið á fyrirsögnina
Lesa meira
09.09.2018
Skáksveit Hörðuvallaskóla er Norðurlandameistari grunnskólasveita en sveitin sigraði á Norðurlandameistaramótinu sem lauk sunnudaginn 9. september! Fyrir lokaumferðina hafði sveitin eins vinnings forskot á dönsku sveitina en þessar sveitir mættust í lokaumferðinni. Hörðuvellingar unnu 3-1 og þar með Norðurlandameistaratitilinn! Sveitin hlaut 17½ vinninga af 20 mögulegum sem er glæsilegur árangur. Mótið fór fram í Tampere í Finnlandi.
Sveit Norðurlandmeistara Hörðuvallaskóla skipuðu:
Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Arnar Heiðarsson, Sverrir Hákonarson, Benedikt Briem og Óskar Hákonarson. Liðsstjóri var Gunnar Finnsson. Til hamingju með þennan stórglæsilega árangur!
Lesa meira
02.09.2018
Dagskrá félagsmiðstöðvarinnar Kúlunnar er fjölbreytt í september að vanda.. smellið á fyrirsögnina..
Lesa meira
02.09.2018
Nú má nálgast fréttabréf / matseðil septembermánaðar hér á heimasíðunni. Í plagginu er m.a. að finna kynningu á skólareglum skólans og samræmdum viðmiðum fyrir skóla Kópavogsbæjar ef skólasókn nemenda er ófullnægjandi. Smellið á fyrirsögnina til að nálgast plaggið..
Lesa meira