Fréttir

Morgunkaffi sálfræðings!

Föstudaginn 14 febrúar kl 8:30-9:15 ætlar Erlendur Egilsson, sálfræðingur í Hörðuvallaskóla að fjalla um einbeitingu og athyglisfærni barna út frá sjónarhóli foreldra. Fræðslan mun eiga sér stað í salnum í Vallakór. Við hvetjum sem flesta til að mæta til að nýta sér þessa frábæru fræðslu!
Lesa meira

Kúlan sigrar söngkeppni félagsmiðstöðva Kópavogs

Söngkeppni félagsmiðstöðva í Kópavogi var að venju haldin hátíðleg í lok janúar en keppnin er árlegur viðburður félagsmiðstöðvanna. Fjölmargir hæfileikaríkir unglingar stigu á svið en að þessu sinni sigraði Kúlan með flutningi Marínar Ingu Sigurðardóttur á laginu “Always remember us this way” með söngkonunni Lady Gaga úr kvikmyndinni Star is Born. Í öðru sæti í keppninni var félagsmiðstöðin Fönix og félagsmiðstöðin Jemen í þriðja. Fyrstu þrjú sætin í Kópavogskeppninni taka þátt í Söngkeppni Samfés sem haldin verður í Laugardagshöllinni í mars n.k. Við óskum Marín Ingu innilega til hamingju með frammistöðuna og hlökkum til að fylgjast með framhaldinu!
Lesa meira

Íslandsmót grunnskólasveita í stúlknaflokki – skák

Íslandsmót grunnskólasveita í stúlknaflokki fór fram í Rimaskóla, Grafarvogi laugardaginn 25. janúar 2020. Telft var í þremur aldursflokkum; 1.-2. bekk, 3.-5. bekk og 6.-10. bekk. 10 sveitir tóku þátt í mótinu; tvær í yngsta flokki, fimm í miðflokki og þrjár í elsta flokki. Sveit Álfhólsskóla sigraði í yngsta flokki og A-sveit Rimaskóla vann bæði miðflokk og elsta flokk. A-sveit Hörðuvallaskóli lenti í öðru sæti í flokki 3.-5. bekkjar með 9 1/2 vinning af 14 mögulegum eða tæp 68% sem er ágætur árangur. Guðrún Fanney vann allar sínar skákir á fyrsta borði og Þórey á þriðja borði fékk 3 vinninga af 4. Sveitin var þannig skipuð: Guðrún Fanney Briem 4. bekk, Klara Hlín Þórsdóttir 3. bekk, Þórey M. Magnúsdóttir 5. bekk og Margrét Mirra Bjarkadóttir 3. bekk. Til hamingju stúlkur! B-sveit HV stóð sig eftir atvikum þokkalega og hlaut 2 1/2 vinning enda við erfiða andstæðinga að eiga. Sveitina skipuðu: Diljá Hjartardóttir, Áróra R. Gissurardóttir, Lára B. Eggertsdóttir, Arney Embla Hreinsdóttir og Eydís Klara Kjartansdóttir – allar í 3. bekk. Skákstjóri var Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari og honum til aðstoðar Tinna Finnbogadóttir landsliðskona í skák. Mótið fór hið besta fram í rúmgóðum salarkynnum Rimaskóla. Skákkennari
Lesa meira

Morgunkaffi sálfræðings #2 Reiðivandi

Í næsta morgunkaffi sálfræðings verður fjallað um mótþróafulla hegðun og reiðivanda barna og unglinga. Við fræðumst um það þegar vandinn verður hamlandi og hvað hefur reynst vel í vinnu með börnum sem sýna mótþróafulla hegðun og eru oft reið. Ekki láta þig vanta. Erlendur Egilsson, sálfræðingur í Hörðuvallaskóla, sinnir fræðslunni. Hann hefur starfað á Barna- & unglingageðdeild LSH (BUGL) og Barnaspítala Hringsins ásamt sjálfstæðum sálfræðistörfum. Hann hefur sinnt rannsóknum á þroska og hegðun barna og í doktorsnámi sínu hefur hann sinnt rannsóknum á virkni snjallsímalausna við geðheilsu barna og unglinga. Hann er 4 barna faðir sem öll verða reið, full oft að sumra mati. Fræðslan fer fram í sal Hörðuvallaskóla, Vallakór föstudaginn 10.janúar kl.8.30 til 9.15.
Lesa meira

Gleðilegt nýtt ár!

Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og hlökkum til að vinna með ykkur á árinu.
Lesa meira

Gleðileg jól

Starfsfólk Hörðuvallaskóla óskar nemendum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst skv. stundaskrá þann 6. janúar.
Lesa meira

Kópavogsmeistarar í skák

Það gekk aldeilis fínt í gær hjá krökkunum á skákmótinu í gær. A-sveit 3. bekkjar varð Kópavogsmeistari og C-sveitin (!) lenti í þriðja sæti. B-C og D sveitir fengu allar sérstakar viðurkenningar. Einar Á. og Adrian fengu borðaverðlaun. A-sveit 4. bekkjar hafnaði í þriðja sæti í sínum aldursflokki. A-sveit 8.-10. bekkjar fékk silfur. Semsagt; bronz í 5.-7. og 4.bekk, silfur í 8.-10. bekk og gull í 3.bekk. Virkilega flott frammstaða.
Lesa meira

Morgunkaffi sálfræðings - #1 Kvíði

Ágætu foreldrar / forráðamenn nemenda í Hörðuvallaskóla Við erum að hrinda af stað fyrirlestraröð með sálfræðingi skólans, einn morgunfundur í mánuði. Fyrsti fundur er föstudaginn 15. nóvember kl 8:30-9:15 og er haldinn í stóra salnum í Vallakór. Í fræðslunni er skoðaður kvíðavandi barna út frá sjónarhorni foreldra. Hvað er hamlandi kvíði? Hvernig birtist hann gjarnan hjá börnum? En unglingum? Hvað hefur reynst vel til að hjálpa þeim að fást við kvíðavandann? Þessum spurningum og fleirum verður reynt að leita svara við á fundinum. Ekki láta þig vanta. Erlendur Egilsson er sálfræðingur í Hörðuvallaskóla. Hann hefur starfað á Barna- & unglingageðdeild LSH (BUGL) og Barnaspítala Hringsins ásamt sjálfstæðum sálfræðistörfum. Hann hefur sinnt rannsóknum á þroska og hegðun barna og í doktorsnámi sínu rannsakað virkni snjallsímalausna við heilsueflingu barna og unglinga. Hann er 4 barna faðir. Þau eru mismiklir kvíðaboltar. Hlökkum til að sjá sem flesta bestu kveðjur f.h. starfsmanna Hörðuvallaskóla Þórunn skólastjóri
Lesa meira

Okkar Kópavogur

Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur OKKAR KÓPAVOG
Lesa meira

Fréttabréf októbermánaðar 2019

Fréttabréf októbermánaðar 2019
Lesa meira