01.03.2019
Fréttabréf marsmánaðar er komið á heimasíðuna.. smellið á fyrirsögnina til að nálgast ritið..
Lesa meira
21.02.2019
Fulltrúar Hörðuvallaskóla í Stóru upplestrarkeppninni verða þær Sóley Jóhannsdóttir 7. R og Ásta Margrét Haraldsdóttir 7. R. Til vara verða Eydís Eik Sigurðardóttir 7. G og Salka Finnsdóttir 7. M. Allir nemendur í árganginum tóku þátt í undankeppninni. Stóra upplestrarkeppnin verður haldin í Salnum þann 7. mars nk. klukkan 16:30. Við óskum stelpunum góðs gengis!
Lesa meira
14.02.2019
Í Félagi fagkvenna eru konur með sveinspróf, eru á námssamningi eða í námi í iðngreinum. Tilgangur félagsins er að hvetja konur til að sækja nám og störf í iðnaði og þá sér í lagi í karllægum iðngreinum. Þær komu til okkar í skólann í gær og héldu kynningu fyrir krakkana í 3. bekk.
Lesa meira
08.02.2019
Vinabangsinn Blær heimsótti nemendur í 1. og 2. bekk í dag. Með þeim á sal voru nemendur af leikskólunum Austurkór, Kór og Baugi. Blær fór yfir jákvæð samskipti og sungin voru nokkur lög sem allir nemendur voru búnir að æfa. Takk fyrir innlitið, Blær.
Lesa meira
04.02.2019
Það gekk aldeilis vel á Íslandsmóti stúlknasveita um helgina.
Stelpurnar okkar í 1.-2. bekk gerðu sér lítið fyrir og unnu sinn flokk og urðu þar með Íslandsmeistarar!
Þær hlutu 19 1/2 vinning af 24 mögulegum eða 81,25%.
Sveitina skipuðu Klara Hlín Þórsdóttir 2. bekk, Arney Embla Hreinsdóttir 2. bekk, Margrét Mirra Bjarkadóttir 2. bekk, Dagmar Lilja Gunnarsdóttir 1. bekk, Íris Mjöll Nóadóttir 2. bekk og Eydís Klara Kjartansdóttir 2. bekk.
Sveit HV í flokki 3.-5. bekkjar lenti í 3.sæti með 16 1/2 vinning af 28 mögulegum eða 59%.
Sveitina skipuðu Guðrún Fanney Briem 3. bekk, Sigrún Anna Viggósdóttir 3. bekk, Silja Vignisdóttir 4. bekk og Þórey Margrét Magnúsdóttir 4. bekk.
Foreldrar og aðrir aðstandendur fylgdu stelpunum og studdu við bakið á þeim sem er ómetanlegt í slíkri keppni.
Til hamingju stelpur!
Lesa meira
01.02.2019
Fréttabréf febrúarmánaðar er komið á heimasíðuna. Smellið á fyrirsögnina til að nálgast ritið..
Lesa meira
24.01.2019
Ljóðstafur Jóns úr Vör var afhentur í 17. sinn við hátíðlega athöfn í Salnum á afmælisdegi skáldsins þann 21. janúar. Ljóðasamkeppni grunnskóla Kópavogs var einnig kunngjörð þá en 170 ljóð bárust frá grunnskólabörnum. Hörðuvallaskóli tók að sjálfsögðu þátt í ljóðakeppninni og stóðu nemendur sig með mikilli prýði. Í fyrsta sæti var nemandi í 10. bekk úr Kársnesskóla en í öðru sæti var nemandi við Hörðuvallaskóla, Örn Tonni Ágústsson Christensen, með ljóðið Englar. Örn Tonni er í 6. S.
Sjö nemendur hlutu sérstaka viðurkenningu og í þeim hópi eru tveir nemendur í Hörðuvallaskóla þeir Elmar Daði Ívarsson, 6. L og Snorri Sveinn Lund, 6. L.
Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran árangur!
Lesa meira
06.01.2019
Fréttabréf janúarmánaðar er komið á heimasíðuna.. smellið á fyrirsögnina til að nálgast ritið...
Lesa meira
20.12.2018
Starfsfólk Hörðuvallaskóla óskar nemendum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst skv. stundaskrá þann 4. janúar.
Lesa meira
08.12.2018
Miðvikudaginn 12. desember kl. 17:30 stendur Foreldrafélagið, í samstarfi við bekkjarfulltrúa, fyrir aðventugöngu / aðventustund. Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:
Allir mæta með góða skapið, jólahúfu og vasaljós! Lagt verður af stað í göngu um nágrennið kl. 17:30
Að lokinni göngu mun hópur frá skólahljómsveit Kópavogs flytja nokkur lög og danspör frá dansfélaginu Hvönn dansa og boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur
Hlökkum til að sjá sem flesta í hátíðar- og friðarskapi.
Við hvetjum alla til að koma gangandi, því takmarkað er af bílastæðum.
Kær kveðja Stjórn Foreldrafélags Hörðuvallaskóla
Lesa meira